Leiðbeiningar fyrir öryrkja

Öryrkjar fá 70% afslætti af almennum strætó fargjöldum.

Afsláttur fyrir öryrkja - ekki með rafræn skilríki

  • Allir sem þurfa aðstoð við Klapp geta komið til Strætó á Hesthálsi 14. Það er til dæmis ef fólk er ekki með rafræn skilríki.
  • Ef fólk er ekki með rafræn skilríki þá þarf það að hringja í Tryggingastofnun og fá þá til að haka við Ég veiti Tryggingastofnun leyfi til að gefa Strætó upplýsingar um stöðu mína fyrir sig áður en það kemur upp á Hestháls.
  • Síminn hjá TR er 560 4400 og hann er opinn frá kl. 11-15.
  • Eftir að fólk er búið að tala við Tryggingastofnun þá getur það komið upp á Hestháls, nauðsynlegt er að hafa skilríki með mynd og kennitölu með sér þegar það kemur.
  • Það er opið á skrifstofunni hjá Strætó virka daga milli klukkan 9 til 16.
  • Það er líka hægt að hringja í hjálparsíma Klapp í síma 540-2710 eða senda tölvupóst á klappid@klappid.is

Afsláttur fyrir öryrkja - með rafræn skilríki

Þeir sem eru með rafræn skilríki geta virkjað afsláttinn sinn sjálfir með því að:

  • Fara á tr.is. Skráðu þig inn á “Mínar síður”.
  • Veldu “Þú hjá TR” og “Þínar upplýsingar”
  • Hakaðu við “Ég veiti Tryggingastofnun leyfi til að gefa Strætó upplýsingar um stöðu mína.” Þú hakar við með því að ýta á kassann fyrir framan.

Þú þarft bara að gera þetta einu sinni.


Kaupa fargjöld á öryrkja-afslætti

Eftir að búið er að virkja afsláttinn er hægt að kaupa farmiða á öryrkjaafslætti með þessum skrefum:

1. Skráðu þig á Mínar síðurinn á www.klappid.is

  • Ef þú ert með aðgang skaltu skrá þig inn.
  • Ef þú ert ekki með aðgang þarft þú að ýta á “Nýskrá”. Þá býrðu til nýjan aðgang með símanúmerinu þínu eða netfanginu þínu.
  • Ef þú átt Klapp kort, skráðu númerið sem stendur á kortinu og veldu nafn á kortið. Þú getur keypt Klapp kort á sölustöðum Strætó eða í vefverslun Strætó.

2. Veldu “Kaupa”.

3. Nú skaltu ýta á takkann “Tengjast með rafrænum skilríkjum”.

Hér fyrir neðan er mynd af takkanum.

4. Þú þarft að auðkenna þig með rafrænum skilríkjum. Það er til að Strætó geti sótt upplýsingar um að þú sért öryrki og megir fá afslátt.

  • Núna eiga strætó fargjöld með 70% öryrkja-afslætti að bætast við hjá þér þegar þú kaupir miða. Myndin fyrir neðan sýnir hvernig þetta lítur út.

5. Veldu “Stakir miðar”til að kaupa staka miða.

  • Veldu “Tímabil” til að kaupa mánaðarkort eða árskort.
  • Veldu “Bæta í körfu” til að kaupa kortið eða miða.

dis img description

  • Passaðu vel að það standi Öryrkjar og TR í glugganum.
    Ef það stendur eitthvað annað í glugganum þá skaltu ýta á “Breyta” og velja öryrkjafargjald

7. Veldu innkaupakörfuna uppi í hægra horninu til að borga fyrir miðana eða kortið.

8. Nú þarftu að bæta við greiðslukorti og borga.

Eftir nokkra klukkutíma þá dettur afslátturinn út. Þá þarft þú að ýta aftur á “Tengjast með rafrænum skilríkjum” og þá kemur öryrkja-afslátturinn aftur inn. 

Klapp